Menning
Óvissuferð sumar 2012
Óvissuferð sumar 2012
Barnastarf
Mynd 7 af 7
1 2 3 4 5 6 7

16.08.2012

Síðustu ferðinni í Barnastarfi Menningarmiðstöðvar lokið þetta sumarið

Óvissuferð í Barnastarfi Menningarmiðstöðvar

Á þriðjudaginn var síðasta ferð í Barnastarfi Menningarmiðstöðvar þetta sumarið, en það var óvissuferðin. Farið var í ratleik um bæinn í grenjandi rigningu en krakkarnir létu það ekki stoppa sig í leit að vísbendingum.

Búið var að fela ýmsar vísbendingarnar víðsvegar um bæinn, en þær voru sjö talsins og þurfti að ganga nokkra vegalengd til þess að finna þær allar og botna. Lokavísbendingin vísaði krökkunum á pitsuveislu á Ósnum svo ferðin endaði vel og allir fóru heim saddir og sælir með ferðina.

Í sumar er búið að fara í 10 fjölbreyttar ferðir um sýsluna með það að leiðarljósi að kynna fyrir börnum náttúru, dýralíf, sögu og menningu á svæðinu. Barnastarfsferðirnar hafa verið árlegur viðburður hjá Menningarmiðstöðinni frá árinu 2001 og hafa gengið mjög vel.

Starfið heldur að sjálfsögðu áfram næsta sumar og við hlökkum til að hitta krakkana að nýju og þökkum fyrir skemmtilegt og fróðlegt sumar.

Starfsfólk Menningarmiðstöðvar

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica