Sigling um Hornafjörðinn með Hornafjörður Bay cruise
Siglt um fjörðinn í barnastarfi Menningarmiðstöðvar
Í gær fóru krakkarnir í Barnastarfi Menningarmiðstöðvar í siglingu um Hornafjörðinn með Fúsa í Hornafjörður Bay Cruise.
Siglingin var um klukkutíma löng og siglt var austur að Þinganesi og á heimleiðinni var siglt fram hjá Borgey. Ferðin var mjög skemmtileg og gaman var að fylgjast með forvitnum selum og fuglalífi í firðinum.
Krakkarnir skemmtu sér vel þrátt fyrir smá rigningu og kulda. Í næstu ferð verður farið í fuglaskoðun í Óslandið með honum Bjössa Arnar.
Munið að skrá ykkur í ferðina á Bókasafninu og sjáumst á þriðjudaginn.


