Spretta – smiðjur fyrir fólk á aldrinum 16 – 25 ára dagana 18 – 24 júní
Ljósmyndun - Skapandi skrif - Kvikmyndagerð
Spretta er nafnið á smiðjum sem fara fram dagana 18. – 24. Júní á Höfn. Í boði eru þrjár mismunanandi smiðjur fyrir ungt fólk á aldrinum 16 – 25 ára og fara þær fram á kvöldin vikuna fyrir Humarhátíð.
Afrakstur smiðjanna verður svo sýndur gestum og heimamönnum á meðan á hátíðinni stendur. smiðjurnar sem eru í boði eru:
Ljósmyndun en þar verður megináherslan lögð á myndir af fólki á sem fjölbreyttastan hátt.
Skapandi skrif þar sem fjallað verður um grundvallaratriði í kvikmyndahandritsgerð.
Kvikmyndagerð þar verður farið í saumana á hvaða lögmál liggja að baki góðra kvikmynda gerð og farið yfir helstu grundvallaratriði.
Nánari upplýsingar um allar smiðjurnar er að finna á heimasíðunni www.spretta.tumblr.com og á www.facebook.com/spretta
Þátttökugjald er 3.000 krónur og hægt er að skrá sig á námskeið með því að senda vefpóst með nafninu sínu, fæðingarári og námskeiðsheiti á sprettur-hornafjordur@live.com



