Menning
Þjóðahátíð 2012 - dagskrá
Þjóðahátíð 2012 - dagskrá
Þjóðahátíð 2012 - dagskrá
Mynd 1 af 2
1 2

02.05.2012

Þjóðahátíð í Nýheimum 5. maí

Þjóðahátíð í annað sinn í Nýheimum

Þann 5. Maí næstkomandi mun Menningarmiðstöð Hornafjarðar ásamt hópi fólks af erlendu bergi brotið halda Þjóðahátíð í Nýheimum í annað sinn. Í sveitarfélaginu býr fólk frá yfir 20 ólíkum löndum og hafa 11 ákveðið að taka þátt í hátíðinni, en löndin eru Þýskaland, Sri Lanka, Marokkó, Pólland, Holland, Tæland, Eþíópía, Filippseyjar, Danmörk, Perú og Ísland.

Á hátíðinni verður boðið upp á tónlist, myndir, þjóðbúninga ýmissa landa og mat. Glærukynning verður um öll löndin sem taka þátt í hátíðinni svo hægt er að fræðast um hver og eitt þeirra. Einnig verða í boði tónlistaratriði frá Samkór Hornafjarðar, Kvennakór Hornafjarðar, Tónskóla Austur – Skaftafellssýslu og frá Skemmtifélagi Hornafjarðar.

Hátíðin hefst klukkan 13:00 og stendur til klukkan 16:00. Allir eru hjartanlega velkomnir og aðgangur er ókeypis

Dagskrá hátíðarinnar er að finna hér að ofan sem mynd en einnig er hægt að nálgast hana hér

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica