Menning
Rödd þjóðarinnar
Rödd þjóðarinnar
Rödd þjóðarinnar
Mynd 2 af 2
1 2

13.04.2012

Halldór Gunnar kórstjóri Fjallabræðra fangar rödd Hornfirðinga og þjóðarinnar

Í Sindrabæ mánudaginn 16. apríl klukkan 18:00

Halldór Gunnar Pálsson kórstjóri Fjallabræðra er um þessar mundir að vinna að stóru verkefni sem miðar að því að reyna að ná rödd þjóðarinnar inn á upptöku.

Hugmyndin kom til vegna lags sem hann er að vinna að fyrir Fjallabræður. Lagið nefnist Ísland og er stórt og mikið verkefni með aðkomu margra.

Halldór Gunnar er á ferðalagi um landið og ætlar sér að stoppa á eins mörgum stöðum og hann getur og safna fólki saman. Hann kemur við á Hornafirði þann 16. apríl næstkomandi og ætlar að freista þess að ná rödd Hornfirðinga á upptöku í Sindrabæ frá klukkan 18:00.

Allir áhugasamir einstaklingar sem vilja ljá rödd sína í þetta verkefni eru hvattir til að mæta í Sindrabæ.

Nánari upplýsingar er að finna á síðunni www.thjodlag.is og inni á síðunni http://www.facebook.com/thjodlag

Hér er svo að finna umfjöllun Halldórs um komu sína á Hornafjörð.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica