Ari Trausti heldur fyrirlestur um eldgos á Suðurlandi í Nýheimum
Ari Trausti heldur fyrirlestur um Eldgos í Nýheimum fimmtudaginn 12. apríl kl 20:00
Ari trausti Jarðeðlisfræðingur er þjóðþekktur og hefur skrifað fjölda bóka um náttúru Íslands, jarðfræði, eldfjallafræði, stjörnufræði og umhverfisvernd og svona má lengi telja.
Einnig er Ari þekktur sem dagskrárgerðarmaður í bæði útvarpi og sjónvarpi og fyrir heimildarmyndir og þáttaraðir sem hann hefur staðið að.
Ari kemur til með að ræða um Suðurlandsgosbeltið, eldgos og eldstöðvar frá Tindafjalli til Esjufjalla. Suðurlandsgosbeltið er sérstætt miðað við aðal rekbelti landsins og telst afar virkt. Þar eru mörg af stærstu eldfjöllum landsins og öflugar gossprungur. Sagan frá landnámi er skrautleg, bæði gossagan og áhrif umbrota á fólk og land.
Fimmtudaginn 12. apríl mun Ari Trausti flytja fyrirlestur um þetta efni og teygir sig allt til Grímsvatna. Fyrirlesturinn fram í Nýheimum klukkan 20:00. Allir eru velkomnir.



