Menning
Frostrosir-2011
Frostrosir-2011
Frostrosir-2011

07.12.2011

Stórtónleikar Frostrósa í Íþróttahúsinu á fimmtudag

Frostrósir heimsækja Hornafjörð

Frostrósir halda í ár upp á tíunda tónleikaárið og blása til sannkallaðrar tónleikaveislu á aðventunni.

Í tilefni afmælisins verður tónleikaferð Frostrósa um landið enn viðameiri en áður og bætist Höfn í Hornafirði nú aftur í hóp tónleikastaða.

Tónleikar Frostrósa á Höfn verða haldnir í Íþróttahúsinu, fimmtudaginn 8. desember kl. 21:00. Flytjendur í tónleikaferð Frostrósa um landið verða þau Friðrik Ómar, Garðar Thór Cortes, Hera Björk, Margrét Eir og Vala Guðna. Með þeim syngja barnakórar og félagar úr Stórhljómsveit Frostrósa leika undir stjórn Karls O. Olgeirssonar.

Miðaverð er 4990 krónur og miðasala fer fram á www.frostrosir.is

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica