Menning
Bókmenntakynning Pakkhúsi
Bókmenntakynning Pakkhúsi
Úr myndasafni

06.12.2011

Árleg rithöfundakynning fór fram í Pakkhúsinu 29. nóvember

Árlegri rithöfundarkynningu lokið

Rithöfundakynning Menningarmiðstöðvar fór fram þann 29. nóvember í Pakkhúsinu fyrir fullu húsi.

Það voru rithöfundarnir Bryndís Björgvinsdóttir sem las úr “Flugan sem stöðvaði stríðið”, Ari Trausti Guðmundsson úr “ Sálumessa“, Sigríður Víðis Jónsdóttir úr „ Ríkisfang ekkert“ , Arnþór Gunnarsson úr „Á afskekktum stað“, Vigdís Grímsdóttir úr „ Trúir þú á töfra“ Erla Hulda Halldórsdóttir úr „Nútímans konur“ og Soffía Auður Birgisdóttir úr „ Angantýr“ en Soffía skrifaði eftirmála bókarinnar.

Nemar úr Tónskóla Hornafjarðar fluttu tónlistaratriði. Upplesturinn var vel sóttur og voru það um 90 manns sem nutu kvöldstundarinnar í Pakkhúsinu.

Menningarmiðstöð Hornafjarðar vill þakka rithöfundum, flugfélaginu Erni, Ásgarði og öllum þeim sem réttu hjálparhönd á einn og annan hátt.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica