Sýning á verkum Elínborgar Pálsdóttur í fremra rými listasafns
Sýning á verkum Elínborgar Pálsdóttur opnar 2. desember kl 16:00
Sýning á verkum Elínborgar Pálsdóttur opnar í fremra rými Listasafns þann 2. desember klukkan 16:00.
Sýningin er yfirlitssýning á verkum Elínborgar en hún hefur málað í rúm 30 ár. Það sem einkennir verkin á sýningunni er að þau eru máluð á rekavið og tunnufjalir.
Verkin eru öll í einkaeigu og mun sýningin standa út desember. Allir velkomnir.
Listasafnið er opið alla virka daga frá klukkan 9:00 til 12:00 og 13:00 til 15:30 og aðgangur er ókeypis.



