Menning
Lúruveiði 2011 1
Lúruveiði 2011 1
Farið á lúruveiðar með Gísla Karli í Barnastarfi 2011
Mynd 1 af 11
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11

06.07.2011

Lúruveiði Barnastarfsins

Farið í lúruveiði með Gísla Karli

Á þriðjudag fóru 14 krakkar og 2 starfsmenn Menningarmiðstöðvar á lúruveiði í Skarðsfirði með Gísla Karli lúruveiðimanni. Farið var frá smábátabryggjunni um klukkan 13 og ekki komið til baka fyrr en tveimur tímum síðar.
 
Farið var í Skarðsfjörð þar sem net voru sett út og vonast var eftir stórveiði. Ekki varð mikið úr stórveiðinni en rétt yfir 30 lúrur fengust og tveir krabbar sem vöktu mikla lukku meðal barnanna.
Þegar í land var komið var farið í Akurey og nestið snætt áður en haldið var heim á leið.
Flott ferð í alla staði.
 
Í næstu viku er áætlað að fara ferð í Víkingaþorpið úti á Horni. Fylgist vel með á Skjávarpinu og á facebook. Munið að það þarf að skrá sig í allar ferðir.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica