Tolli opnar sýningu
Listamaðurinn Tolli opnar sýningu í Kartöfluhúsinu
Myndlistamaðurinn Tolli opnaði sýningu á fimmtudag kl 16. Þema sýningarinnar er landslag og er sýningin sölusýning. Mjög góð mæting var á opnunina sem var í blíðskapar veðri og gátu gestir einnig notið veðurblíðunnar utandyra í sólinni. Sýningin verður opin alla daga nema mánudaga frá klukkan 13-17 til 31. Júlí.



