Fjöruferð í Barnastarfi
Fjöruferð út að Stokksnesi
Í dag fóru 10 hressir krakkar í fjöruferð á vegum Menningarmiðstöðvarinnar. Farið var í fjöruna við Stokksnes og óðu krakkarnir í flæðarmálinu. Eftir að hafa leikið þar í nokkra stund var farið uppí sandhólana og spjallað saman yfir nestinu.
Nokkrir strákar fundu netakúlu sem þeir gátu dundað með og mikið var reynt að blása í ýlustrá. Komið var til baka á bókasafnið rúmlega þrjú ánægð og blaut í fætur.
Fleiri myndir er hægt að sjá á facebook síðu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.


