Menning
Nýheimar
Nýheimar.

16.04.2011

Störf á Menningarmiðstöð Hornafjarðar

Velferðaráðuneytið og Vinnumálastofnun standa í sumar fyrir átaksverkefni til að fjölga störfum á vegum stofnana ríkisins og sveitarfélaga,  fyrir námsmenn og atvinnuleitendur.  Um 900 störf verða auglýst í sérstöku auglýsingablaði sem dreift verður nú um helgina. Hér finnur þú upplýsingar um störf sem í boði eru hjá Sveitarfélaginu Hornafjörður. Frekari upplýsingar um önnur störf er að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar: vmst.is.
Ráðningartíminn er tveir mánuðir í júní og júlí. Skilyrði fyrir ráðningu námsmanna er að þeir séu á milli anna í námi en atvinnuleitendur þurfa að vera á skrá Vinnumálastofnunar með staðfestan bótarétt. Opnað verður fyrir umsóknir um störfin 16. apríl og umsóknarfresturinn er til 8. maí.  Stefnt er að því að ljúka ráðningum um miðjan maí.
Námsmenn eru hvattir til að skoða vel það sem í boði er og nýta sér þennan möguleika á að komast í áhugaverð störf á vegum Sveitarfélagsins yfir sumartímann.

Starf á Byggðasafni:
100% starfshlutfall – starfs á Byggðasafni, móttaka ferðamanna, uppsetning sýninga, skráning og frágangur muna og ýmiss önnur verkefni sem til falla. Upplýsingar gefur Björg Erlingsdóttir, bjorgerl@hornafjordur.is og umsóknarfrestur er 09.05.2011.

Starf á Jöklasýningu:
100% starfshlutfall – starf á Jöklasýningu. Móttaka gesta, umsjón með sýningunni og ráðgjöf til ferðamanna, tungumálaþekking nauðsynleg. Upplýsingar gefur Björg Erlingsdóttir, bjorgerl@hornafjordur.is og umsóknarfrestur er 09.05.2011.

Starf á Menningarmiðstöð
100% starfshlutfall – verkefnavinna, unnin í samstarfi við starfsmenn Menningarmiðstöðvar. Kortlagning á mögulegum samstarfsaðilum í uppbyggingu sýninga í sveitarfélaginu. Upplýsingar gefur Björg Erlingsdóttir, bjorgerl@hornafjordur.is og umsóknarfrestur er 09.05.2011.

Starf á Menningarmiðstöð

100%  starfshlutfall – ýmis störf innan Menningarmiðstöðvar, skráning og frágangur muna, þátttaka í uppsetningu sýninga og þátttaka í barnastarfi Menningarmiðstöðvar. Upplýsingar gefur Björg Erlingsdóttir, bjorgerl@hornafjordur.is og umsóknarfrestur er 09.05.2011.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica