Menning
Þetta vilja börnin sjá
Þetta vilja börnin sjá
Þetta vilja börnin sjá myndskreytingar úr barnabókum 2010

06.04.2011

Þetta vilja börnin sjá á Bókasafni Nýheima

Sýningin þetta vilja börnin sjá er farandsýning frá Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.

Á sýningunni eru myndskreytingar úr íslenskum barnabókum 2010 og verður hún á Bókasafni Nýheima frá 7. til 28. apríl.

Myndirnar úr bókunum á sýningunni hafa allar keppt um íslensku myndskreytingarverðlaunin Dimmalimm, en þau eru veitt fyrir bestu myndskreytingar í íslenskum barnabókum og er þeim ætlað að hvetja bæði útgefendur og höfunda texta og mynda til frekari dáða.

Sýningin hefur verið haldin árlega í Gerðubergi frá árinu 2002. Markmið sýningarinnar er að beina athyglinni að gildi myndskreytinga í barnabókum.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica