Upplestur rithöfunda í Pakkhúsi
Hinn árlegi upplestur rithöfunda í Pakkhúsinu verður á morgun fimmtudaginn 9. desember kl. 20:00.
Í ár fáum við 4 gesti en þeir eru Kristín Steinsdóttir sem les úr bók sinni Ljósa, Steinunn Jóhannesdóttir sem les úr bók sinni Heimanfylgja, Ófeigur Sigurðarson með bók sína Jón og Gunnar Eyjólfsson með ævisögu sína Alvara leiksins, auk þeirra verður lesið úr bókum Þorsteins Jóhannessonar Undir breðans fjöllum og ljóðabók Sigurjóns Jónssonar Jörðin kallar á börnin sín.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Kaffi og piparkökur í boði
Rithöfundarnir verða svo á ferð um bæinn á föstudag og lesa fyrir grunnskólanemendur og heimsækja aldraða á Hjúkrunarheimilið.
Menningarmiðstöð Hornafjarðar og Listvinasjóður



