Jólamarkaður í Nýheimum og Miðbæ
Árlegur jólamarkaður
Þann 4. desember verður árlegur jólamarkaður í Nýheimum og Miðbæ. Markaðurinn hefur verið mjög vinsæll síðustu ár þannig að nú fer hver að verða síðastur að panta sér bás fyrir vörurnar sínar.
Handverk, hönnun og list af öllu tagi, ásamt matvöru úr Ríki Vatnajökuls hafa verið áberandi á markaðnum en einnig er hægt að kaupa sér góðgæti á staðnum sem Kvennakór Hornafjarðar hefur séð um að laða fram.
Boðið verður upp á tónlistar og söngatriði frá kórum bæjarins, ásamt fleiri tónlistarmönnum og lúðrasveit Hornafjarðar spilar jólalög til að koma okkur í jólaskapið.
Jólamarkaðurinn er kjörið tækifæri til að finna rétta jólapakkann, hvort sem það er sælkeramatur úr sveitarfélaginu eða fallegt handverk frá heimamönnum.



