Styrkir til menningarmála
Á morgun, þriðjudaginn 9. nóvember verða þær Signý Ormarsdóttir, menningarfulltrúi Austurlands og Dorothee Lubecki, menningarfulltrúi Suðurlands, í heimsókn hjá okkur á Hornafirði. Sveitarfélagið mun að öllu óbreyttu, starfa í framtíðinni undir menningarráði Suðurlands og eru nokkrar áherslubreytingar á starfi milli fjórðunganna.
Forsvarsmönnum félagasamtaka, hópa og sýninga og einstaklingar sem sótt hafa um styrki í sjóði menningarráðs Austurlands er boðið að koma í Nýheima og ræða við þær stöllur og þiggja af þeim góð ráð.
Fundurinn verður klukkan 14:00 í kaffiteríu og boðið verður uppá kaffi.
Allir velkomnir
Starfsmenn Menningarmiðstöðvar


