Menning
barnastarf_061
barnastarf_061
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

14.06.2010

Barnastarf Menningarmiðstöðvarinnar hefst á þriðjudag

Barnastarfið hefst

Barnastarf Menningarmiðstöðvarinnar er hafið! Það verður nóg um að vera hjá okkur í sumar. Við förum í 9 skemmtilegar ferðir. Þið þurfið að skrá ykkur í ferðirnar annað hvort á Bókasafninu eða í síma 470-8050. Mikilvægt er að klæða sig eftir veðri og hafa með sér nesti. Verðið er óbreytt, eða 500 krónur á barn. Ferðirnar eru á þriðjudögum í sumar og hefjast kl.13:00. Þið verðið að fylgjast með hvaðan ferðirnar byrja, fyrsta ferðin, fornleifarannsóknir byrjar við Menningarmiðstöðina og sú næsta fuglaskoðunin hefst við Akurey. Vonandi sjáum við ykkur sem flest. Uppskeruhátíð sumarstarfs og sumarlesturs verður svo 24. ágúst.

Barnastarf sumarið 2010

1. Fornleifarannsóknir 15. Júní

2. Fuglaskoðun 22. Júní

3. Hoffell - pottar 29. Júní

4. Steinaferð 6. Júlí

5. Heyskapur 13. júlí

6. Víkingaþorpið 20. júlí

7. Lúruveiði 27. júlí

8. Eyðibýlaskoðun 10. ágúst

9. Óvissuferð 17. Ágúst

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica