Veggurinn minn
Vegginn minn þessa viku á Ingibjörg Steinsdóttir
Borðið: Gaf mér gömul kona sem Ingibjörg hét og ég var skýrð í höfuðið á, er kom á sama tíma á hverjum morgni á æskuheimili mitt á Eyrarbakka til að fá nýja kúamjólk á brúsann sinn. Kona þessi var einstæðingur og bláfátæk, en borðið og forláta krús, sem hún ánafnaði mér líka, gaf henni konungborin kona í kring um 1920 fyrir saumaskap og fannst henni mikið til þess koma og bað mömmu að láta þessa 2 hluti ávallt fylgja mér, en hún lést á 5 ára afmælisdegi mínum. Foladsmyndin: Keypti ég af ungum læknakandidat, sem var með á sýningu á Selfossi 1974. Hann var að afla tekna fyrir framhaldsnámi sínu og var að gera tilraun með frauðplast, liti, striga og fl. og var með nokkrar slíkar myndir, en ég heillaðist af þessu fallega folaldi. Ikonarnir: Ég á marga fallega Ikona, en valdi þessa tvo. Þann minni keypti ég í munkaklaustri í Austurríki, þar sem Kiljan sat og skrifaði, hér á árum áður. Sá stærri heitir “Hin milda móðir” , sem vinir mínir gáfu mér er móðir mín lést árið 2000 og þykir afar vænt um hann, líkt og alla mína Ikona sem eru orðnir þó nokkuð margir. Bæði þá sem ég hef keypt mér, hér og erlendis, einnig þá sem ég og fleiri hafa búið til, en það er afar gaman að búa til Ikona, eins og þeir vita sem það hafa gert..



