Menning
Þórbergssetur
Þórbergssetur
Þórbergssetur

08.04.2010

Bridgehátíð og hrossakjötsveisla verður um helgina í Þórbergssetri

Hin árlega bridgehátíð og hrossakjötsveisla verður haldin í Þórbergssetri um helgina.

Þetta er fjórða árið sem þessi hátíð er haldin á Þórbergssetri en upphafið má rekja til Torfa Steinþórssonar á Hala sem var mikill félagsmálafrömuður og áhugamaður um spilamennsku og gekkst hann fyrir bridgekeppni og hrossakjötsveislum í Suðursveit á árum áður. Afkomendur hans hafa tekið að sér að halda merkinu á loftinu og halda við hefðinni. Hér er fyrst og fremst um áhugamannamót að ræða þar sem helgin verður tekin í eina allsherjarskemmtun yfir spilum með áti inn á milli. Byrjað verður að spila kl 15:00 á laugardeginum og verður spilað fram eftir kvöldi með tilheyrandi áthléum, en síðan byrjað klukkan 10 á sunnudeginum. Allir áhugamenn um bridge sem kunna að halda á spilum eru velkomnir, og einnig er fólki velkomið að kíkja við á laugardagskvöldið til að smakka hrossakjötið og skoða sig um í Þórbergssetri.

Hægt er að fá gistingu og allan viðurgjörning á Halabæjunum á meðan að spilamennskan stendur yfir. Upplýsingar og pantanir eru hjá Þorbjörgu í síma 867 2900 eða Þórbergi 899-2409

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica