Menning
evropa-unga-folksins
evropa-unga-folksins
Evrópa unga fólksins

06.01.2010

Evrópa unga fólksins Hornafjörður unga fólksins

Evrópa unga fólksins

Evrópa unga fólksins er íslenska heitið á Ungmennaáætlun Evrópusambandsins, Youth in Action, og er samstarfsverkefni ESB, mennta- og menningarmálaráðuneytisins og UMFÍ. Áætlunin veitir styrki fyrir ungt fólk á aldrinum 13-30 ára. Á hverju ári veitir Evrópa unga fólksins á Íslandi um 1.000.000€ í styrki til góðra verkefna sem skipulögð eru af ungu fólki og/eða fyrir ungt fólk. Sveitarfélagið Hornafjörður ætlar að sækja um styrk í verkefnið Hornafjörður unga fólksins. Markmið verkefnisins er að auka þátttöku ungs fólks í lýðræðislegu samfélagi, hvetja til þátttöku heima og að heiman í mótun umhverfis og framtíðar. Verkefnið byggir á virkri þátttöku ungs fólks á aldrinum 13-30 ára og hefjumst við handa nú á laugardaginn, 9. janúar með vinnufundi í Pakkhúsinu. Fulltrúi Evrópu unga fólksins mætir og segir frá þeim verkefnum sem áætlunin styrkir. Eftir kynninguna verða settir saman vinnuhópar sem koma til með að leggja þær línur sem unnið verður eftir í verkefninu. Allir þeir sem áhuga hafa á lýðræði og þróun þess, ungir sem aldnir, eru velkomnir í Pakkhúsið á laugardaginn kl. 11:00. Nánari upplýsingar um Evrópu unga fólksins er að finna á vefsíðunni: http://www.euf.is/euf/

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica