Ljósmyndasýningin Þórir SF-77
Ljósmyndasýningin Þórir SF -77 verður opnuð í Pakkhúsinu sunnudaginn 27. dsember næstkomandi. Á sýningunni eru myndir sem Brynja Dögg Friðriksdóttir tók af áhöfn Þóris sem gerður er út af Skinney- Þinganesi.
Brynja Dögg er áhugaljósmyndari og hefur fengist við ljósmyndun frá unga aldri. Hún hefur unnið við blaðamennsku og dagskrárgerð síðastliðin fjögur ár, m.a. í Kompási á Stöð 2, fréttastofu Stöðvar 2, DV auk lausamennsku fyrir fjölmörg íslensk tímarit. Brynja stundar meistaranám í heimildamyndagerð við Salford háskóla í Manchester á Englandi.
Sýningin var einnig sett upp í Reykjavík í september síðastliðnum og fékk góðar móttökur. Fréttablaðið, DV, Séð og Heyrt, kvöldfréttir Stöðvar 2, tíufréttir RÚV, Kastljósið og Útvegsblaðið fjölluðu um sýninguna að því tilefni. Sýningin stendur fram til 3. janúar og eru allir velkomnir.
Með kveðju - sjáumst á sýningunni
Brynja Dögg



