Menning
Dagur-islenskrar-tungu-004
Dagur-islenskrar-tungu-004
Ásdís Pálsdóttir las ljóðið sitt Umhverfi hafsins
Mynd 3 af 6
1 2 3 4 5 6

18.11.2009

Dagur íslenskrar tungu

Á degi íslenskrar tungu 16. nóvember fer Stóra upplestrarkeppnin af stað í grunnskólum landsins. Hún er haldin meðal 7. bekkinga á landinu öllu og munu þeir æfa sig í upplestri næstu vikur og mánuði.  En það er fleira sem gert er í tilefni dags íslenskrar tungu.  Nemendur úr 7. bekk fóru á leikskólana og lásu upp fyrir börnin þar og einnig var nemendum boðið að taka þátt í ljóða- og smásagnasamkeppni á vegum Menningarmiðstöðvarinnar. 

Nokkur ljóð og smásögur bárust en einnig eitt kvikmyndaleikrit sem búið var að kvikmynda og var það sýnt við athöfn í Nýheimum í hádeginu þar sem nemendur lásu upp verkin sín. 

Sigurvegari samkeppninnar að þessu sinni var Sævar Örn Kristjánsson nemandi í 9. Í en framlag hans var ljóðið Eldur.

 

Eldur

Eldurinn er eins og maður

Hann brennur af ást og hann brennur af hatri

Hann lifir með hjálp en deyr úr einsemd

Hann skapar líf eins og hann tekur líf

Hann lifir á hita ástvinar en deyr úr kulda

Eldurinn er lífið og dauðinn.

                     Sævar Örn Kristjánsson

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica