Dagur íslenskrar tungu
Á degi íslenskrar tungu 16. nóvember fer Stóra upplestrarkeppnin af stað í grunnskólum landsins. Hún er haldin meðal 7. bekkinga á landinu öllu og munu þeir æfa sig í upplestri næstu vikur og mánuði. En það er fleira sem gert er í tilefni dags íslenskrar tungu. Nemendur úr 7. bekk fóru á leikskólana og lásu upp fyrir börnin þar og einnig var nemendum boðið að taka þátt í ljóða- og smásagnasamkeppni á vegum Menningarmiðstöðvarinnar.
Nokkur ljóð og smásögur bárust en einnig eitt kvikmyndaleikrit sem búið var að kvikmynda og var það sýnt við athöfn í Nýheimum í hádeginu þar sem nemendur lásu upp verkin sín.
Sigurvegari samkeppninnar að þessu sinni var Sævar Örn Kristjánsson nemandi í 9. Í en framlag hans var ljóðið Eldur.
Eldur
Eldurinn er eins og maður
Hann brennur af ást og hann brennur af hatri
Hann lifir með hjálp en deyr úr einsemd
Hann skapar líf eins og hann tekur líf
Hann lifir á hita ástvinar en deyr úr kulda
Eldurinn er lífið og dauðinn.
Sævar Örn Kristjánsson



