Menning
Bjossi-bangsi-8
Bjossi-bangsi-8
bjossi bangsi í heimsókn
Mynd 5 af 5
1 2 3 4 5

30.10.2009

Bjössi Bangsi í heimsókn á Menningarmiðstöðinni

Bjössi Bangsi í heimsókn

Hann Bjössi bangsi kom ásamt fríðu föruneyti hingað á Bókasafnið fyrir viku síðan og það hefur aldeilis verið mikið að gera hjá honum eftir það. Bjössi bangsi á heima á Krakkakoti og heimsækir svo hin ýmsu fyrirtæki í bænum. Hann var á Skjalasafninu með honum Sigga og þar fór hann að lesa í Flateyjarbók, en hann gafst nú fljótt upp á því vegna þess að hún er svo stór og á eldgömlu máli. En hann fékk líka að hjálpa honum Sigga að skrá skjöl. Greyið lenti í því að festast á milli hillna og einnig í hurðargati. Á fimmtudögum er sögustund á Bókasafninu og þangað koma margir krakkar og þangað fór hann Bjössi líka til að hlusta á hana Bryndísi lesa, hann reyndi sjálfur að lesa en bókin var á hvolfi. En það sem honum Bjössa bangsa þótti allra allra skemmtilegast var þegar hann fór með honum Bjössa nafna sínum út í bæ. Þeir nafnarnir fóru í heimsókn á Byggðsafnið og þar sá Bjössi bangsi allskonar furðudýr og hluti og þar fékk hann að prófa að setjast í söðul, hann fékk að tala í gamla símann og þetta varð honum næstum því um megn svo hann lagði sig í eldgömlu rúmi. í morgun fylgdi Guðný Bjössa heim til krakkanna á Krakkakoti og urðu það fangnaðarfundir. Takk fyrir vikuna Bjössi bangsi Starfsfólk Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica