Menning
barnastarf_061
barnastarf_061
Mynd 2 af 4
1 2 3 4

26.10.2009

Sparisjóðurinn veitir Menningarmiðstöðinni styrk

Styrkur til Menningarmiðstöðvar

Menningarmiðstöð Hornafjarðar fékk á laugardaginn síðasta styrk frá Sparisjóðnum á Höfn, Djúpavogi og Breiðdalsvík. Styrkurinn kemur úr styrktar og menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja og er þetta tuttugasta og annað árið sem úthlutað er úr sjóðnum. Menningarmiðstöðin fékk styrk fyrir Barnastarfið sem fer fram bæði á sumrin og veturna með ýmsum hætti, sem dæmi má nefna allskyns ferðir með fræðslu og sögu Hafnar að leiðarljósi, eins og lúruveiðina vinsælu, fjársjóðsleit, fuglaskoðun og steinaskoðun. Einnig er í gangi sumarlestrarátak þar sem haldið er utan um lestur barnanna og fá þau svo verðlaun í enda sumars fyrir lestrardugnaðinn. Á veturna er svo haldið upp á Dag Íslenskrar Tungu, Norræna Bókasafnaviku Bókasafninu, Bangsadaginn og svo eru hefðbundnar sögustundir fyrir yngstu kynslóðina einu sinni í viku. Menningarmiðstöðin þakkar kærlega fyrir þessa viðurkenningu og mun styrkurinn koma sér vel í barnastarfinu sem framundan er.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica