Skák er skemmtileg!
Fyrsta taflkvöld vetrarins var haldið í Pakkhúsinu s.l. þriðjudagskvöld. Sex manns á ýmsum aldri og báðum kynjum mættu og tefldu sér til ánægju í tvo klukkutíma.
Þetta lofar góðu um framhaldið og var ákveðið að halda taflmennsku áfram á hverju þriðjudagskvöldi kl. 8. Vonandi sjáum við fleiri á næsta taflkvöldi. Vissara er að einhverjir hafi með sér töfl.



