Menning
Markaðsdagur í Pakkhúsinu
Markaðsdagur í Pakkhúsinu
Marketday in Pakkhúsið
Mynd 3 af 4
1 2 3 4

28.09.2009

Vel heppnaður markaðsdagur í Pakkhúsinu

 

Síðastliðinn laugardag var fyrsti markaðsdagur vetrarins í Pakkhúsinu. Bændur frá Seljavöllum, Miðskeri, Hólabrekku, Hlíðarbergi og Dilksnesi seldu afurðir sínar enda ný búið að taka upp úr görðunum, en einnig voru bændur með á boðstólnum kjötvöru á borð við heitreykta og grafna gæs, heitreyktar og ferskar andabringur, hvalkjöt, nautavöðva, svínakótelettur og beikon. Ábrystir var hægt að versla sér á markaðnum en hann var merktur kúnni sem við átti. Unnsteinn og Ómar voru með sinn gómsæta makríl, ásamt nýjum fiski. 3. flokkur Sindra seldi vöfflur og kaffi en flokkurinn stendur í fjáröflun vegna fótboltaferðar til Noregs. Fleiri aðilar voru með vörur og nýttu tækifærið og tóku til í geymslunni hjá sér.

Margt var um manninn á markaðnum og talið er að rúmlega 300 manns hafi heimsótt markaðinn þá fjóra tíma sem hann var opin. Salan gekk vel og heimamarkaður með afurðum matvælaklasa Ríki Vatnajökuls verður vikulega, á hverjum laugardegi í Pakkhúsinu frá klukkan 13:00  til 17:00. Afurðaframleiðendur sem að óska eftir að vera með bás á vikulega markaðnum sendi póst á rosa@rikivatnajokuls.is Stærri markaðsdagur, þar sem ýmsar vörur verða í boði er svo aftur eftir 5 vikur eða þann 7. nóvember. Allri þeir sem áhuga hafa á því að vera með bás á markaðsdegi einu sinni í mánuði er það velkomið, áhugasamir geta sent póst á gudlaugp@hornafjordur.is

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica