Menning
Birta á sölubás
Birta á sölubás
Birta á sölubás

23.09.2009

Markaðsdagur í Pakkhúsinu

 

Á laugardaginn næsta eða þann 26. september verður markaðsdagur í Pakkhúsinu. Hugmyndin er sú að vera með Kolaportsstemmningu einu sinni í mánuði  þar sem bændur, einstaklingar, félagasamtök, handverksfólk, íþróttaflokkar  o.s.frv. geta selt afurðir úr héraði, mat, handverk og nytjahluti. Takmarkað pláss er í húsinu svo þeir sem hafa áhuga á að vera með bás sendi póst á gudlaugp@hornafjordur.is  sem fyrst. Básinn kostar 1000 krónur fyrir daginn og er markaðurinn opinn frá klukkan 13:00 til 17:00. Borð eru á staðnum svo að ekki er nauðsynlegt að koma með þau með sér en húsið er tæmt eftir hvern markaðsdag. Hægt er vera með bás hvenær sem er yfir veturinn og engin kvöð er að vera með bás oftar en einu sinni. Markaðsdagurinn er samstarfsverkefni matarklasa í Ríki Vatnajökuls og Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Hægt verður að versla beint af bóndanum á markaðnum ásamt annarri vöru. Komið, sjáið og gerið góð kaup, hvort sem er á matvöru eða annarri vöru. 

Verið velkomin

 

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica