Menning
mynd04
mynd04
Fjarðarball 07

18.09.2009

Félagsmiðstöðin Miðgarður

 

Miðvikudaginn 2. september var Miðgarður opnaður. Þá var tilkynnt hverjir voru kosnir til Miðgarðsráðs. Sex aðilar eru í ráðinu, tveir úr hverjum árgangi, 8.-10. bekk. Hlutverk þeirra verður svo að vera tengiliðir síns árgangs ásamt því að skipuleggja viðburði og sjá um þá ásamt starfsfólki Miðgarðs. Þá er fundað vikulega auk þess sem ráðið fer í vinnuferð ásamt starfsmanni til að koma með hugmyndir fyrir starfið, sem verður svo unnið úr.

 

Í Miðgarðsráði eru:

Formaður: Lukka Óðinsdóttir (10.Á)

Varaformaður: Ingólfur Waage Jónsson (10.B)

Ritari: Anna Regína Heiðarsdóttir (9.Í)

Meðstjórnendur: Ingvi Þór Sigurðsson (9.A), Ljósbrá Dögg Ragnarsdóttir (8.G) og Ívar Örn Valgeirsson (8.G)

Fimmtudaginn 10. september var opnað fyrir 6. og 7. bekk og unglingunum gefinn kostur á að kynnast húsnæðinu, tækjunum og starfsfólkinu.

Síðastliðinn mánudag setti Miðgarðsráð saman dagskrá fyrir september og október. Hún inniheldur meðal annars: bíókvöld, Guitar Hero keppni, Miðgarðsquiz, kökukeppni, 80´s ball og strandbolta. Í lok september verður svo farið í vinnuferð þar sem endanleg dagskrá fram að jólum verður gerð.

Ýmsir klúbbar eru í bígerð, t.d. eftirfarandi:

Hobbýklúbbur: spennandi og skemmtilegur klúbbur þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þar verður fjölbreytnin í fyrirrúmi, m.a. margmiðlun, matseld, fjallgöngur, fiskveiðar. Svo verður endað á óvissuferð. Klúbburinn hefst þriðjudaginn 15. september og er til 17. nóvember.

Stílklúbbur: Undirbúningur fyrir Stíl 2009. Stíll er keppni á vegum Samfés sem gengur út á fatahönnun, förðun og hárgreiðslu. Fyrirhugað er að hafa hér undankeppni fyrir aðalkeppnina, og verður leiðbeinandi með hópnum.

Söngklúbbur: Söngkeppni Samfés er árlegur viðburður og er undankeppni fyrir hana á austurlandi (SamAust). Við leggjum metnað í að unglingarnir séu vel undirbúnir fyrir keppnina og því verður klúbbur þar sem unglingarnir geta fengið leiðbeiningu frá fagaðilum, svo verður haldin undankeppni í lokin en efstu tvö sætin fara svo í SamAust keppnina.

 

Opnunartími Miðgarðs er eftirfarandi:

8. - 10. bekkur

Mánudagar: 20:00 - 22:00

Þriðjudagar: í hádeginu

Miðvikudagar: 20:00 - 22:00

Fimmtudagar: í hádeginu

Föstudagar: í hádeginu og 20:00 - 23:00 (annan hvern föstudag)  

6. - 7. bekkur

Miðvikudagar: 16:30 - 18:30

 

Einnig má geta þess að fyrirhugað er að opna Miðgarð fyrir ungmenni á aldrinum 16-25 ára. Miðgarður væri þeim afþreyingarstaður þar sem markmiðið er að bjóða ungu fólki upp á aðstöðu til skemmtunar og dægradvalar án vímuefna og tóbaks. Leitast verður við að ungmennin skipuleggi að mestu starfsemina og verði leiðandi í jákvæðu starfi ungs fólks.

Starfsemi í Miðgarði verður auglýst í skólum, á Facebook, á Skjávarpinu og svo er verið að vinna að heimasíðu þar sem verður hægt að fá ýmsar gagnlegar upplýsingar. Starfsmenn Miðgarðs eru Helga Rún Guðjónsdóttir og Brynjar Þór Pétursson.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica