Menning
Listasmiðja 2008
Listasmiðja 2008

16.09.2009

Nýir liðir hjá Menningarmiðstöðinni

Nýr liður sem nefnist Veggurinn minn er á dagskránni hjá Menningarmiðstöðinni í haust, en þar gefst fólki tækifæri til þess að koma með sín eftirlætis verk, málverk eða ljósmyndir á Bókasafnið, þar sem verkið mun hanga í vikutíma. Þeir sem hafa áhuga á að sýna eftirlætisverkin sín verða að senda myndir af þeim á veggurinnminn@hornafjordur.is en hlekkinn fyrir Vegginn minn er að finna inn á samfélagsvefnum undir menningu. Valið verður úr innsendum myndum af verkum í hverri viku.

Settur verður af stað hugmyndabanki inn á samfélagsvefnum, þar sem fólki gefst tækifæri til þess að koma með hugmyndir að nýjum viðburðum sem hægt er að framkvæma í samstarfi við Menningarmiðstöðina.
Hægt er að senda hugmyndir á Hugmyndabankann á netfangið hugmyndabankinn@hornafjordur.is 

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica