"Bréf til næturinnar"
Laugardaginn 5. september verður haldið útgáfuteiti í fundarhúsi Lónmanna, í tilefni útgáfu bókar Kristínar Jónsdóttur, Bréf til næturinnar sem Félag ljóðaunnenda á Austurlandi gefur út. Kristín Jónsdóttir er fædd á Hlíð í Lóni árið 1963 og hefur lengst af búið í Lóni og unnið þar við búskap. Kristín hefur stundað ritstörf frá unga aldri og birt ljóð, smásögur og greinar í blöðum og tímaritum. Bréf til næturinnar er fyrsta ljóðabók Kristínar og hafa ljóðin orðið til á nærri tveimur áratugum. Athöfnin hefst klukkan 14:00, höfundur les úr verkum sínum og boðið verður upp á kaffiveitingar og tónlistaratriði



