Menning
Mannakorn
Mannakorn

10.08.2009

Menningar og tónlistarvika framundan

 

Í þessari viku verður mikið um listir og byrja viðburðirnir þann 11. ágúst, eða á morgun. Þá ætla Bibbi og krakkarnir sem voru á listanámskeiðinu hjá honum í sumar að vera með sýningu á verkum sínum á Graðaloftinu klukkan 20:00. Krakkarnir sem eru á aldrinum 14 til 16 ára hafa unnið að verkunum frá því í júlí. Veitingar verða í boði.

Sama dag verður tríó Andrésar Þórs með tónleika í Pakkhúsinu klukkan 21:00 en tríóið leikur eigin útsendingar á þekktum amerískum lögum, ásamt íslenskum dægurlögum úr smiðju Jóns Múla og Jenna Jóns í bland við eigin lög. Miðaverð inn á tónleikana er 1500 krónur.

Aðrir tónleikar vikunnar verða svo  föstudaginn 14. ágúst  í Pakkhúsinu klukkan 21:00 en þar munu nokkrar Hornfirskar hljómsveitir halda uppi Kaffihúsastemningu og er miðaverðið 500 krónur.

Hljómsveitin Mannakorn verða svo með tónleika deginum á eftir eða á laugardeginum í Pakkhúsinu klukkan 20:30. Hljómsveitin leikur lög af nýjum geisladiski sínum Von, en auk þess spila þeir gömlu góðu lögin. Tónleikarnir byrja klukkan klukkan 20:30 og munu standa til klukkan 22:30 svo að nægur tími verður til að fara yfir á Jökulsárlón til að fylgjast með flugeldasýningunni sem verður á miðnætti.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica