Listasmiðja Sigga Palla og Halldóru hefst í dag
Fyrir 10-14 ára krakka 15. júní – 3. júlí.
Síðastliðið sumar var gerð tilraun með einskonar listasmiðju fyrir Humarhátíð þar sem ýmislegt var til gamans gert en aðalatriðið var að taka virkan þátt í skrúðgöngu og opnunarhátíð Humarhátíðar. Viðtökur voru mjög góðar og því á að reyna aftur í sumar.
Allir krakkar á aldrinum 10-14 ára geta verið með, við gerum búninga til að nota í göngunni, æfum skemmtiatriði sem við sýnum á sviði, lærum að ganga á stultum, vinnum með takt, tónlist og einföld fimleikaatriði. Ef við fáum leiðinlegt veður og verðum að vera mikið inni lærum við að gera blöðrudýr, æfum andlitsmálun o.fl.
Við byrjum kl. 9 á morgnana og vinnum til 12, að auki gerum við okkur klár í skrúðgöngu á föstudeginum 3. Júlí og skemmtum okkur og öðrum fram eftir kvöldi.
Gott er að hafa með sér smá nesti á morgnana því að við viljum hafa orku og fjör allan tímann.
Við verðum sem mest úti við en höfum húsaskjól þar sem við getum geymt dótið okkar og unnið inni ef veðrið er leiðinlegt.
Verð fyrir Listasmiðju er 5000 kr. Efniskostnaði er stillt í hóf þannig að við verðum að vera dugleg að finna eitthvað efni í búninga sjálf, gramsa í geymslum og dóti og endurnýta gamalt efni.
Skráning í dag og morgun í Sindrabæ frá 9-12
Athugið að áður auglýstur aldur í dreifibréfi Menningarmiðstöðvarinnar er ekki réttur.
Hlökkum til að sjá ykkur í Listasmiðju!
Dóra og Siggi Palli.



