Menning
Dr. Fred Goldberg
Dr. Fred Goldberg

25.05.2009

Hvítasunnuhelgin á Jöklasýningunni

Frábærir fyrirlestrar

Um Hvítasunnuhelgina, 31. maí – 1.júní heimsækir okkur sænski vísindamaðurinn dr.Fred Goldberg.

Á sunnudagskvöldinu kl. 20.00 mun hann flytja erindi um hlýnun jarðar og sýna myndir frá sænskum jöklaleiðöngrum. Fer hann ótroðnar slóðir í túlkun sinni á loftslagsvanda jarðarbúa, eða eins og segir í bloggi Sigurðar Grétars Guðmundssonar þann 22.maí sl.  „Dr. Fred er algjörlega á öndverðum meiði við Loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna IPCC sem Al Gore fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna byggir kvikmynd sína "Óþægilegur sannleikur" á. Það þarf talsverðan kjark til að ganga gegn þessum öflum sem hafa fengið Nóbelsverðlaun fyrir kenningar sínar.“

Mánudaginn 1. júní (2. í Hvítasunnu) verður farið í ferð inn að Hoffellsjökli kl. 10.00.

Sama dag í Jöklasetrinu kl. 15 flytur hann svo erindi um sænska leiðangurinn 1936 og sýnir myndir og kvikmyndabrot frá sama leiðangri. Þá mun hann afhenda Jöklasetrinu bakpoka úr leiðangrinum til eignar.

 Báðir fyrirlestrarnir eru á ensku.

Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica