Menning
IMG_4592-tjodahatid
IMG_4592-tjodahatid
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

28.04.2009

Velheppnuð Þjóðahátíð í Nýheimum

Velheppnuð Þjóðahátíð að baki

Á sumardaginn fyrsta fór fram Þjóðahátíð í Nýheimum við frábærar undirtektir. Á hátíðinni kynntu 10 þjóðarbrot menningu sinna landa en þau voru Bosnía, Eþíópía, Filippseyjar, Færeyjar, Holland, Ísland, Marokkó, Pólland, Sri Lanka og Taíland. Hægt var að skoða hluti sem einkenna menningu þeirra þjóða sem tóku þátt, einnig var hægt að hlusta á tónlist, sjá myndbönd og smakka á mat þessara þjóða. Talið er að um 500-600 manns hafi heimsótt Þjóðahátíðina enda var þröngt í Nýheimum á meðan á henni stóð. Þjóðahátíð sem þessi er bara byrjunin á því sem koma skal og verður árlegur viðburður hér eftir enda heppnaðist hún ótrúlega vel. Þess má geta að í Austur - Skaftafellssýslu býr fólk af 18 þjóðernum og því vantaði 8 upp á að þau tækju öll þátt í hátíðinni í ár. Næsta hátíð verður enn umfangsmeiri en sú fyrsta og hlökkum við til þess að sjá fleiri þjóðarbrot taka þátt. Við viljum þakka öllum þeim sem tóku þátt í að gera þessa hátíð að veruleika og hlökkum til að fara að vinna að þeirri næstu.

Starfsfólk Menningarmiðstöðvar
Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica