Úrslitakvöld spurningakeppninnar
Spurningakeppni fyrirtækjanna hefur verið fádæma vinsæl í vetur og hafa 110-140 manns mætt hvert kvöld. Keppnin er haldin í samvinnu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Lionsklúbbs Hornafjarðar.
Sunnudagskvöldið 26. apríl verður úrslitakvöldið í Hafnarkirkju kl. 20.00
Fjögur lið eru eftir í keppninni en þau eru: Ásgarður, Grunnskóli Hornafjarðar, Skálafell og Ráðhúsið.
Fyrst keppa lið Ásgarðs og Ráðhússins og síðan Skálafells og Grunnskólans. Sigurliðin í riðlunum berjast síðan um 1. sætið. Eitthvað verða spurningarnar erfiðari í þessari umferð en verið hefur.
Liðið sem stendur eftir sem sigurvegari fær að launum farandgrip „Hornafjarðarheilinn“ auk þess sem hver liðsmaður fær grip til eignar. Gripirnir eru unnir og hannaðir af Nanný (Rannveigu Gunnlaugsdóttur).
Komið og fylgist með spennandi keppni.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir


