Menning
Þórbergssetur
Þórbergssetur
Þórbergssetur

14.04.2009

Fermingarsýning í Þórbergssetri

Skriðuklaustur og Þórbergssetur hafa unnið að samstarfsverkefni um að skrá fermingarsögur eftir eldra fólki á Austurlandi síðastliðið ár. Verkefnið var styrkt af Menningarráði Austurlands.

Sett hefur verið upp sýning á Skriðuklaustri sem sýnir afrakstur þessa verkefnis. Flytja á  sýninguna í Þórbergssetur í maí og stefnt er að opnun hennar þar laugardaginn 9. maí.  

Þórbergssetur óskar nú eftir samstarfi við eldri íbúa Skaftafellssýslu um að fá að láni og safna saman munum sem tengjast fermingum frá fyrri tíð.

Fermingarsýningin í Þórbergssetri verður opin til 4 júní 2009.

Munir sem tengjast fermingum frá fyrri tíð og óskast að láni gætu t.d. verið

 

                   fermingargjafir

                   fermingarkort, fermingarskeyti

                   fermingarkjóll eða kápa ( heimasaumað)

                   fermingarskór ( t.d. með háum hæl)

                   fermingarföt karla, (vasaklútur o.s.frv)

                   hárskraut.

                   húsgögn frá þessum tíma ( kistlar, kommóða, skatthol, skartskripaskrín )

                   gamlar áritaðar sálmabækur, eða biblía

                   heimagerðir munir sem tengjast fermingu

                   sérstakir dúkar, servíettur o.s.frv.

                   skannaðar myndir og myndefni, (má vera mikið af því)

                   annað sem skemmtilegt væri að sýna frá liðinni tíð sem tengist fermingu.

 

Vinsamlega hafið samband við Þorbjörgu í síma 867 2900 eða á hali@hali.is

 

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica