Félagsmiðstöðin Þrykkjan skiptir um nafn
Eftir að félagsmiðstöðin fór í nýtt húsnæði hefur komið fjöldi áskorana um að skipta um nafn. Eftir óformlega könnun í Heppuskóla var ákveðið að efna til nafnasamkeppni, en þrátt fyrir nokkrar góðar hugmyndir fannst Þrykkjuráði engin þeirra passa nýju húsnæði. Þau lögðu því höfuðið í bleyti og leituðu í goðafræðina og var ákveðið að félagsmiðstöðin skuli heita Miðgarður. Það er vel við hæfi þar sem hún er stödd í hjarta bæjarins og er miðstöð unglinga.
Í næstu viku verður formleg opnunarhátíð þar sem öllum er velkomið að kíkja, það kemur tilkynning síðar um dagsetningu og tíma. Eins verður efnt til graff- og slagorðakeppni, hugmyndum er hægt að skila til Helgu Rúnar.
Eins viljum við vekja athygli á breyttum opnunartíma fyrir 8.-10. bekk:
Mánudagar: 20:00 - 22:00
Þriðjudagar: í hádeginu
Miðvikudagar: 20:00 - 22:00
Fimmtudagar: í hádeginu
Föstudagar: í hádeginu og 20:00 - 23:00 (annan hvern)



