Fyrstu lotu lokið í spurningakeppni fyrirtækja
Á sunnudaginn var, 8. mars, fór fyrsta lotan fyrir spurningakeppni fyrirtækjanna fram í fyrirlestrarsal Nýheima. Keppnin byrjaði klukkan 20 og mættu 11 lið til leiks. Lið Hafnarkirkju komst ekki þannig að andstæðingar þeirra, Ráðhúsið komst því áfram án þess að keppa. Mikil stemning var í salnum og troðið út úr dyrum í orðsins fyllstu merkingu, en telja starfsmenn Menningarmiðstöðvar að yfir 140 manns hafi komið til að fylgjast með keppninni. Sex fyrirtæki eru komin áfram eftir þessa fyrstu lotu og þau eru Starfsgreinafélagið Afl, Erpur, Framhaldskóli Austur Skaftafellssýslu, Hótel Jökull, Bókhaldsstofan og Ráðhúsið. Sigurður Kr. Sigurðsson og Magnús J. Magnússon skiptust á að vera spyrlar og munu halda því áfram næstu sunnudagskvöld. Vonast er eftir svona góðri mætingu í næstu lotu keppninnar sem verður haldin næstkomandi sunnudag 15.mars.


