Dean Farrell með tónleika, sögur og látbragð í Pakkhúsinu
Kontrabassa- og látbragðsleikarinn Dean Farrell verður með tónleika í Pakkhúsinu þann 10. mars nk. á vegum Listvinasjóðs og Tónlist fyrir alla. Tónleikarnir eru stryktir af FÍH og FÍT.
Dean Farrell er Hornfirðingum að góðu kunnur en hann hefur áður haldið tónleika í Pakkhúsinu.
Dean hefur getið sér orð víða um lönd fyrir óvenjulega og bráðskemmtilega tónleika/ kvöldskemmtanir þar sem hann nálgast sígilda tónlist og bókmenntir með afar sérstæðum og oft bráðfyndnum hætti án þess að slá nokkurn tíma af listrænum kröfum.
Á miðvikudeginum mun Dean verða með tónleika fyrir leik-og grunnskólabörn.
Efnisskrá: “the dog show”
(Efnisskrá í tónum og orðum, sumt á íslensku annað á ensku)
Valsar nr.1-6 eftir Domenico Dragonetti;
The Bear Song eftir Dean Ferrell
The Hunting Song eftir Captain Tobias Hume
“”DOG” Poem by Lawrence Ferlinghetti, music by D. Ferrell
Hound dog eftir Elvis Presley
B.B. Wolf eftir Jon Deak.
Stutt atriði á milli tónlistaratriðanna:
“True historical anecdotes about Dragonetti and his St. Bernard, Carlo” og fleiri örsögur
Lýsing: “40,000 years of Music, songs and texts relating to man´s two best friends- the bass and the dog.” Flytjandi vill gjarnan vera í hundaræktunarfélagið á staðnum!
Um Dragonetti: Domenico Dragonetti var einn frægasti kontrabassaleikari sögunnar, fæddur á Ítalíu en var lengi búsettur í London. Hann hafði mikil áhrif á tónlistarlífið á Englandi. Dragonetti var mjög skrautlegur karakter, mikil prímadonna og með ákaflega mikla söfnunaráráttu.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 Aðgangseyrir er kr. 1.000.- frítt fyrir nemendur Tónskólans



