Norðurljósablús og humarblót á Humarhöfninni
Feðgarnir Örn Elías og Guðmundur kafteinn betur þekktir sem Mugison og Muggur munu heiðra Hafnarbúa með nærveru sinni á Humarhöfninni næstkomandi föstudag. Tilefnið er hinn árvissi Norðurljósablús en Mugison mun spila fyrir matargesti Humarhafnarinnar og Muggur matreiða en hann býður upp á 3ja rétta matseðil, sjá nánar á humarhofnin.is
Tími kl.18.00 – 21.00
Verð kr. 4.900
Vegna mikillar eftirspurnar eru þeir sem eiga frátekin borð vinsamlegast beðnir að sækja miða á miðvikudag 4. mars milli kl. 16.00 og 18.00
Sjáumst í Kaupfélaginu!
Uppl. Í síma 846 –1114 eða 478 –1200



