Menning
Hulda Rós og Rökkurtríóið
Hulda Rós og Rökkurbandið
Mynd: Sigurður Mar

28.02.2009

Frítt inn á Norðurljósablús 2009

Blúshátíðin Norðurljósablús verður haldin í fjórða sinn á Höfn í Hornafirði dagana 5. til 7. mars næstkomandi.  Það hefur sjaldan verið meiri blús í íslensku samfélagi en einmitt um þessar mundir.  Fólk hefur í gegn um árin notað blúsinn til að syngja sig frá erfiðleikunum og gleyma stað og stund í tónlistinni og þannig verður það á Norðurljósablús.  Til þess að gefa sem allra flestum tækifæri á að finna blústaktinn í hjartanu verður frítt inn á alla tónleika hátíðarinnar.

 

Blúsað um allan bæ

Aðal tónleikarnir hvert  kvöld hátíðarinnar verða á Hótel Höfn.  Eftir þá verða blústónleikar samtímis á þremur stöðum í bænum, Hótel Höfn, Kaffi Horninu og Veitingahúsinu Víkinni.  Auk þess munu feðgarnir Mugison og Papa Mug skemmta matargestum á Humarhöfninni. Á föstudaginn mun Mugison heimsækja grunnskólabörn á Höfn og kynna tónlistina sína fyrir þeim. Á sunnudaginn verður blúsmessa í Hafnarkirkju þar sem Rökkurbandið mun sjá um tónlistina.

32 blúsmenn og konur í níu hljómsveitum

Sveitirnar sem koma fram á hátíðinni eru B-Sig frá Reykjavík, Guðgeir Björnsson ásamt hljómsveit frá Egilsstöðum, Pitchfork Rebellion frá Húsavík og Vax frá Egilsstöðum.  Tvö hornfirsk bönd leika á hátíðinni, Mæðusveitin Sigurbjörn og Hulda Rós og rökkurbandið. Einnig kemur saman á ný-gamalt húsband úr Sindrabæ frá 1968 og leikur á hátíðinni og kalla þeir sig Blúsvíkingana.  Þar eru gömlu kempurnar Sæmi Harðar, Óskar Guðna og Raggi Meysa auk unglinganna Bjössa Gylfa og Bjössa Viðars. Þá eru ótaldir feðgarnir Guðmundur og Örn Elías sem betur eru þekktir sem Mugison og Papa Mug. Að sjálfsögðu verður blúsdjamm á hátíðinni þar sem allir geta fengið að taka í hljóðfæri eða syngja og oft hefur myndast einstök djamm stemmning á Norðurljósablús.

Hornfirska skemmtifélagið

Hornfirska skemmtifélagið hefur veg og vanda að Norðurljósablús í samstarfi við veitingamenn og ferðaþjónustufólk á Hornafirði.  Félagið hefur hlotið Menningarverðlaun Hornafjarðar og er styrkt frá Menningarráði Austurlands. Önnur verkefni Skemmtifélagsins eru að standa fyrir tónlistardagskrá á haustmánuðum ár hvert og þar eru það hornfirskir skemmtikraftar sem stíga á stokk.  Hornfirska skemmtifélagi er einn af stofnendum Ferðaþjónustuklasa Hornafjarðar, Ríki Vatnajökuls ehf.

 

DAGSKRÁ

FIMMTUDAGUR 5. MARS

Hótel Höfn

Kl. 21-23: Guðgeir Björnsson                                                                            

 

FÖSTUDAGUR 6. MARS

Humarhöfnin

kl. 18-21: Mugison og Papa Mug skemmta matargestum

Hótel Höfn

Kl. 21-23: B-Sig.

Kl. 23-01: Mæðusveitin Sigurbjörn

Kaffi Hornið

Kl 23-01: Blúsvíkingarnir

Víkin

Kl. 21-03: Dansleikur með hljómsveitinni Silfur

                                  

LAUGARDAGUR 7. MARS

Nýheimar

Kl. 15-18 Blúsdjamm. Allir velkomnir að spila með

Hótel Höfn

Kl. 21-23: Hulda Rós og Rökkurbandið.

Kl. 23-01: Hornafjarðar All Star Blues Jam

Kaffi Hornið

Kl. 23-01: Pitchfork Rebellion

Víkin

Kl. 23-01: VAX

 

SUNNUDAGUR 8. MARS

Hafnarkirkja

Kl. 11:00: Blúsmessa. Rökkurbandið leikur.

  

 

 

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica