Menning
Haltu kjafti og vertu þæg
Haltu kjafti og vertu þæg

19.02.2009

„Haltu kjafti og vertu þæg!“

 

Á morgun, föstudaginn 20. febrúar opnar sýningin „Haltu kjafti og vertu þæg!“ í Nýheimum. Sýningin er unnin uppúr blaðagreinum, bloggfærslum, myndum og grínmyndum – kreppusögur þar sem þjóðarsálin opinberar sig með öllum þeim fjölmörgu vangaveltum sem fólk hefur haft um ástandið síðustu vikur og mánuði. Gestir geta komið sínum hugrenningum um ástandið til skila á sýningunni og öllum er velkomið að hripa á blað vangaveltur sínar. Í fyrirlestrarsal verður myndbandið „Veruleikarof“ sýnt og á bókasafninu er verkið „Vald í kreppu“ sýnt í einum sýningaskápanna. Sýningin verður opin til 13. mars og er aðgengileg á opnunartíma Bókasafnsins, mánudaga-fimmtudaga 9-17 og á föstudögum 11-17. Forvitnileg sýning fyrir Hornfirðinga sem hafa ekki upplifað þann hasar sem verið hefur í höfuðborginni, mótmæli og átök.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica