Þrykkjan fær Hafnarbraut 40
Iðnaðarmenn eru að ljúka við breytingar og endurbætur á húsinu Hafnarbraut 40 sem Sveitarfélagið hefur keypt en þar verður Þrykkjan félagsmiðstöð fyrir unglinga í 6.-10. bekk grunnskólans til húsa. Veggir voru fjarlægðir og nú eru tvö stór rými á neðri hæð ásamt vinnuherbergi og skrifstofa umsjónarmanns. Á efri hæð verður setustofa og fundaraðstaða sem hvoru tveggja er einkum ætlað ungmennum á aldrinum 16-25 ára.Helga Rún Guðjónsdóttir umsjónarmaður Þrykkjunar á von á að þau geti flutt í þetta glæsilega húsnæði um næstu helgi.
Þetta verður alveg meiriháttar flott aðstaða og er allt eins og best hentar fyrir starfsemi Þrykkjunnar segir Helga Rún. Öðru megin í húsinu verður svona ,,dótasalur´´ með ýmsum leiktækjum en hinumegin setustofa og vinnustofa, þar verður klúbbstarfsemi ýmiskonar svo sem blaðaklúbbur og jafnvel kvikmyndaklúbbur þar sem gerð yrði stuttmynd. Inn af vinuherberginu verður skrifstofa Helgu Rúnar og þar verður hún einnig til staðar í hádeginu þannig að krakkarnir geti litið inn ef þau hafa tíma.
Reynt verður að hafa sem mesta og fjölbreyttasta starfsemi í húsinu fylla það af lífi og áhugamálum og ná til allra þessara aldurshópa og eins til þeirra eldri sem fá aðstöðuna á efri hæðinni. Búið er að virkja unglingaráð sem í eru krakkar úr grunnskólanum, þar er formaður nemendafélagsins, Þrykkjuráðs, FAS, aðili frá Sindra, stelpa frá björgunarsveitinni og einn sem er á vinnumarkaðinum. Við ætlum að virkja þau líka segir Helga Rún, fá þau í lið með okkur og koma með hugmyndir og við viljum að krakkarnir ákveði sjálfir hvað gerist í húsinu og eigi frumkvæði að starfseminni.
Þetta hús býður upp á svo mikla möguleika t.d. fyrir ýmsar sýningar s.s. málverkasýningar, ljósmyndasýningar svo eitthvað sé nefnt. Áætlað er að hafa graff-keppni þar sem þau gera lógó Þrykkjunnar og vinna það á einn vegginn eins keppni um slagorð fyrir húsið.
Í lokin segir Helga Rún ,,Það eru spennandi tímar framundan hjá okkur og að fá svona fínt hús, það er toppurinn.Við höldum ótrauð áfram og látum ekki hindra okkur þó á móti blási og erfiðir tímar séu framundan í samfélaginu´´.



