Menning
Þórbergur
Þórbergur
Þórbergur

05.02.2009

Opið námskeið um bækur Þórbergs Þórðarsonar

Háskólasetrið á Höfn og Þórbergssetur bjóða öllum Hornfirðingum og íbúum nærsveita að taka þátt í opnu námskeiði þar sem fjallað verður um Þórberg Þórðarson, ævi hans og verk. Námskeiðið verður haldið hálfsmánaðarlega á þriðjudagskvöldum á milli kl. 20 og 22 í Pakkhúsinu á Höfn. Dagskráin er eftirfarandi:

 

10. feb.  Farið yfir ævi- og ritferil Þórbergs í stórum dráttum.

24. feb.  Bréf til Láru, pistlar og ritgerðir Þórbergs.

10. mars Íslenskur aðall og Ofvitinn.

24. mars Sálmurinn um blómið.

7. apríl Suðursveitarbækurnar

Laugardaginn 2. maí verður í boði að þátttakendur fari saman í heimsókn á Þórbergssetur.

Öllum er heimil þátttaka og fólki er frjálst að mæta í eitt eða fleiri skipti eftir því sem þeim hentar. Stjórnendur námskeiðsins eru Soffía Auður Birgisdóttir, bókmenntafræðingur og sérfræðingur á Háskólasetrinu, og Þorbjörg Arnórsdóttir, forstöðumaður Þórbergsseturs.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica