Menning
Afhending Menningarverðlauna 2007
Afhending Menningarverðlauna 2007
Afhending Menningarverðlauna 2007

04.02.2009

Afhending Menningarverðlauna og styrkja

 

Í febrúar ár hvert fer fram afhending styrkja menningar-og tómstundanefndar, bæjarráðs, atvinnumálanefndar og skólanefndar.  Einnig verður á sama tíma afhending menningarverðlauna.

Menningarverðlaun Sveitarfélagsins hafa verið veitt árlega frá 1995. Auglýst er eftir tilnefningum ásamt rökstuðningi og hafa allir íbúar sveitarfélagsins rétt til að taka þátt.  Tilnefningarnar berast menningar-og tómstundanefnd sem fer yfir þær og leitast við að komast að einróma niðurstöðu. Heimilt er að veita fleirum en einum aðila menningarverðlaun, telji nefndin að fleiri en einn hafi skarað framúr og þannig verðskuldað verðlaunin.   

Verðlaunin eru í formi heiðursskjals sem formaður nefndarinnar undirritar og eru veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum sem viðurkenning fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar á nýliðnu ári. 

Markmið verðlaunanna er að vera almenn hvatning og viðurkenning til eflingar menningar-og listastarfs í sveitarfélaginu.

Þeir sem hlotið hafa menningarverðlaun Hornafjarðar frá upphafi:

Leikfélag Hornafjarðar 1994

Karlakórinn Jökull 1995

Magnús J. Magnússon 1996

Arnþór Gunnarsson 1997

Guðlaug Hestnes 1998

Albert Eymundsson 1999

Barnakór Hornafjarðar 2000

Jóhann Morávek 2001

Gláma-Kím – Árni Kjartansson 2002

Haukur H. Þorvaldsson 2003

Gísli Sverrir Árnason 2004

Nemendafélag FAS 2005

Hornfirska skemmtifélagið og Þórbergssetur 2006

Jack D. Ives 2007

Afhending styrkja og menningarverðlauna fer fram í Nýheimum þann 6. febrúar n.k. kl. 16.00

Allir eru hjartanlega velkomnir.

 

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica