Sigrún Ólafsdóttir var kjörin Hornfirðingur ársins 2008
Sigrún Ólafsdóttir var kjörin Hornfirðingur ársins 2008. Nýheimar og hornafjordur.is stóðu fyrir kosningu á netinu. Fjölmargir tóku þátt og eftirtaldir voru tilnefndir:
Eiríkur Hansson, Matthildur Gísladóttir og Klakarnir, legolið Grunnskóla Hornafjarðar fyrir sigur í first lego keppninni á Íslandi
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir, árvökul og forðaði sjóðum sveitarfélagsins í bankahruninu
Hjalti Þór Vignisson, jákvæður, raunsær og úrræðagóður bæjarstjóri – stýrir bæjarfélagi á uppleið þar sem ekkert krepputal er
Hlynur Pálmason, staðið sig vel og hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín
Hajrudin Cardaklija og Sandra Sigmundsdóttir, þjálfa meistaraflokk og tóku á sig launalækkun – allt gert til að halda starfinu áfram
Alda Þorvarðardóttir, stendur sig vel í baráttu við erfið veikindi
Sigrún Ólafsdóttir, hlaut tvenn verðlaun fyrir doktorsritgerð sína og hefur staðið sig frábærlega í námi sínu.
Eins og Hornfirðingar vita hefðu allir þeir sem tilnefndir voru verið verðugir að hljóta titilinn en í ár er það sem sagt Sigrún Ólafsdóttir sem hlaut flest atkvæði. Fyrir hönd Nýheima og hornafjordur.is óska ég henni til hamingju með titilinn og vona að hún haldi áfram af sama metnaði og krafti og hingað til. Hróður hennar fer víða og ljóst að sveitungar hennar eru stoltir af afrekum og árangri hennar.



