Menning
Fjöruferð
Fjöruferð
Fjöruferð
Mynd 8 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

19.12.2008

Annáll Menningarmiðstöðvar 2008

Árið 2008 er búið að vera annasamt ár hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Aðsókn á starfsemi Menningarmiðstöðvarinnar hefur verið góð í ár og menningarlífið hefur blómstrað. Má áætla að gestir að söfnum, viðburðum og sýningum séu um 43.000 og þá eru ótaldir þeir sem hafa sótt ráð og aðstoð hjá Menningarmiðstöðinni við ýmis undirbúning viðburða, styrkumsóknir og annað.

Menningarmiðstöðin hefur í vaxandi mæli boðið fyrirtækjum, hópum og einstaklingum á svæðinu ráðgjöf við að byggja upp menningartengda ferðaþjónustu og eða aðstoð við að halda viðburði, ásamt því að standa sjálf fyrir viðburðum og á því er engin breyting í ár. Auk þessa hafa starfsmenn Menningarmiðstöðvar tekið þátt í verkefnum sem eru ekki á ábyrgð Menningarmiðstöðvar og dæmi um þessi verkefni eru Gáttir, þar sem unnið er að vöruþróun Papa verkefnis sem verður farið betur yfir hér fyrir neðan, ásamt og Humarhátíð Hornfirðinga.

Menningarmiðstöðin hefur tekin virkan þátt í sköpun atvinnutækifæra innan menningargeirans og í menningartengdri ferðaþjónustu á árinu en það starf er nátengt starfinu sem á sér stað innan Nýheima, þar sem áherslan er lögð á vöruþróun og atvinnusköpun innan ferðaþjónustu og matvæla. Hér að neðan má svo lesa um brot af þeim verkefnum, viðburðum, sýningum og tónleikum sem hafa átt sér stað á árinu

Brot af verkefnum Menningarmiðstöðvar á árinu 2008

Verkefnið Munnleg hefð var unnið í samvinnu við Háskólasetur og Árnastofnun. Gamlar upptökur voru afritaðar á stafrænt form og skráðar orð frá orði. Fjórir starfsmenn unnu að verkefninu og verður því haldið áfram á komandi árum. Markmið verkefnisins er að varðveita þær heimildir sem þegar eru til en hafa verið varðveitt á segulböndum sem standast illa tímans tönn. Þá hefur Heimir Þór Gíslason afhent sveitarfélaginu myndbandasafn sitt til varðveislu og er unnið að því að setja það á stafrænt form og verða myndir hans sýndar þegar fram líða stundir. Verkefnið tengist verkefni sem er í undirbúningi og snýr að sögu svæðisins. Þar verður leitast við að draga fram einstaka atburði, sögur og kennileiti í landslagi, gefa heimamönnum og gestum færi á að kynnast sögu svæðisins á ferðum sínum um héraðið.

Menningarmiðstöðin tók þátt í verkefninu Economuseum, þar sem unnið er með handverksfólki, með það að markmiði að auka verðmæti afurða og ná til ferðamanna. Verkefnið er unnið í samvinnu við Nýsköpunarmiðstöð og hafa tvö fyrirtæki verið valin þar sem unnið er að þróun vinnuaðstöðu, söluaðstöðu og saga handverksins gerð sýnileg. Economuseum er kanadísk hugmyndafræði sem verið er að yfirfæra á fyrirtæki í Evrópu, Ísland, Noregur, Norður Írland, Írland og Færeyjar taka þátt í verkefninu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Hornafirði leiðir verkefnið fyrir Íslands hönd.

Verk Svavars Guðnasonar voru áfram skráð og yfir 1000 verk eru nú skráð, þ.e.a.s upplýsingar um verkin og eigendur þeirra, verkin voru ljósmynduð og stærð mæld. Þetta er mikilvægur grunnur í uppbyggingu á safni Svavars Guðnasonar og veitir Menningarmiðstöð sérþekkingu á verkum listamannsins. Grunnurinn nýtist í undirbúningi sýninga, rannsókna og annarra verkefna t.d. við gerð bókar um Svavar Guðnason sem kemur út árið 2009 en þá verða hundrað ár liðin frá fæðingu þessa merka listamanns.

Verkefni um Söguslóðir á Suðausturlandi, Papaverkefni var unnið í samvinnu við Djúpavogshrepp og Þórbergssetur. Verkefnið Munnleg hefð tengist einnig þessu verkefni. Þórbergssetur sér um verkefnastjórn og koma fjölmargir aðilar innan menningargeirans og ferðaþjónustu að þessu verkefni.

Menningarmiðstöð Hornafjarðar er miðstöð handverks á Austurlandi samkvæmt samningi sveitarfélaga um samstarf í menningarmálum innan fjórðungsins. Síðasta ár vann Menningarmiðstöð að uppbyggingu handverks með þátttöku í verkefninu Economuseum eða Hagleikssmiðjur og eru miklar vonir bundnar við að sú vinna skili sér í öflugra handverki. Þá hélt Menningarmiðstöðin málþing um handverk og vann áætlanir um vöruþróunarmiðstöð sem nýtist jafnt við vöruþróun handverks og matvæla. Gert er ráð fyrir að vöruþróunarmiðstöð verði staðsett á Hafnarvíku-Heppu svæðinu og verði í framtíðinni aðdráttarafl fyrir smáfyrirtæki í vöruþróun, hönnunarfyrirtæki, handverksfólk og aðila í matarframleiðslu. Svæðið er aðdráttarafl fyrir ferðamenn og sú uppbygging sem þegar er orðin á Kaupfélagshúsinu og Verslunarhúsi KASK gefur tóninn um það sem verða kann á þessu svæði.

Sýningar Menningarmiðstöðvar 2008

Saga karlakórsins Jökuls var tekin fyrir í sýningu á árinu. Sýningin spannaði 35 ára sögu kórsins sem var stofnaður á bændafundi árið 1972 með þátttöku manna úr flestum hreppum Austur-Skaftafellssýslu. Karlakórinn hefur starfað óslitið síðan veturinn 1973 og var farið yfir tónleikasögu kórsins á sýningunni þar sem sýndar voru myndir frá tónleikaferðum, árshátíðum og öðrum viðburðum á plasmaskjá. Einnig voru til sýnis persónulegir munir kórmanna, ásamt kórfötunum sem þeir hafa notað í gegnum tíðina. Hægt var að hlusta á allt útgefið efni Kórsins og má þar nefna diskana Það kom söngfugl að sunnan og Í jöklanna skjóli.

Sýningin Njála fyrir börnin var sýnd í kaffiteríu Nýheima. Myndirnar á sýningunni sem er farandsýning eru eftir Margréti E. Laxness og eru úr bókinni Njála í endursögn Brynhildar Þórarinsdóttur. Brynhildur hefur séð til þess að Njáls saga sé aðgengileg börnum og unglingum á auðlæsilegu máli og auki þar með áhuga þeirra á Íslendingasögum. Bókin gefur ungum lesendum innsýn í fornsagnaheim þar sem mannlífið iðar af skemmtilegum frásögnum og hetjur ríða um héruð.

Þetta vilja börnin sjá

Sýningin "Þetta vilja börnin sjá" er sýning á myndum úr barnabókum sem voru gefnar út árið 2007. Sýningin kemur frá Menningarmiðstöðinni Gerðubergi og hefur vakið athygli þeirra sem hana hafa heimsótt enda er um að ræða skemmtilega sýningu þar sem sjá má myndskreytingar úr íslenskum barnabókum. Þessi sýning var liður í starfsemi Menningarmiðstöðvar sem miðstöðvar bókmennta á austurlandi. Þessi sýning var ekki aðeins fyrir börn, verkefnin eru fjölbreitt, vel unninn og áhugaverð fyrir alla aldurshópa. Upphaflega var sýningin sett upp í Gerðubergi en á þessu ári falaðist Menningarmiðstöðin eftir því að sýningin yrði send út á land og þá fyrst í Nýheimum.

Hlynur Pálmason var með sýningu á ljósmyndum og málverkum á árinu. Sýningin var einskonar dagbókarbrot sem hann kallaði "Sjónræn dagbók". Hlynur hélt einnig sýningu í fyrra og hlökkum við til að sjá hvað hann á eftir að sýna okkur í framtíðinni.

Af Sólhól minninganna er sýning sem Borgþór Arngrímsson setti upp í samstarfi við Menningarmiðstöðina. Sýning þessi er safn stuttra frásagna Borgþórs Arngrímssonar sem ólst upp á Sólhól (Bogaslóð 6) frá þriggja ára aldri. Borgþór, sem fæddur er 1950, hefur sett á blað minningabrot úr æsku sinni þar sem ýmsir íbúar í þorpinu og atburðir sem þar gerðust koma við sögu. Sonur Borgþórs Arngrímur, sem er menntaður myndlistarmaður, hefur gert teikningar sem fylgja hverri sögu, án þess þó endilega að tengjast beint söguefninu. Ennfremur fylgja sögunum ljósmyndir sem tengjast efninu.

Hornfirskt landslag var sýning á verkum í eigu sveitarfélagsins eftir þá Höskuld Björnsson, Svavar Guðnason, Jón Þorleifsson og Bjarna Henriksson. Sýningin kallast "Hornfirskt landslag" og þar mátti sjá, eins og nafnið ber með sér, umhverfi Hornafjarðar með augum þessara brautryðjenda.

Byggðasafnið var opið frá byrjun sumars og aðsóknin var góð, en gestir voru um 3000. Byggðasafnið tók þátt í uppgreftri á Bæ í Öræfum og Hólmi í Nesjum. Þá tók Byggðasafnið virkan þátt í barnastarfi Menningamiðstöðvar. Myndin í jöklanna skjóli er sýnd í gömubúð og gefur gestum góða mynd af búskaparháttum í héraðinu fyrr á tímum.

Jöklasýningin og Upplýsingamiðstöðin eru opin allt árið um kring og var aðsóknin þar mjög góð, eða rúmlega 8000 manns komu í heimsókn á safnið á árinu og um 12.460 nýttu sér þjónustu upplýsingamiðstöðvarinnar. Sýningin hin glæsilegasta og vekur lukku hjá þeim sem hana sjá.

Viðburðir Menningarmiðstöðvar 2008

Málþingið vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar var haldið á árinu. Tilgangur málþingsins var m.a. að efla handverk og hönnun á Austurlandi og draga fram þau sérkenni sem þar er að finna í mat og minjum. Markmiðið með málþinginu var að renna styrkum stoðum undir framleiðslu og sölu minjagripa, skapa störf og starfsvettvang fyrir handverksfólk og hönnuði, og skapa þeim aðilum sem þegar vinna við handverk, matarminjar og hönnun, vettvang þar sem sýningar og námskeið verða mótuð um leið og nýsköpun og nýliðun innan greinarinnar verður efld.

Landsmót íslenskra kvennakóra. Rúmlega 330 konur heimsóttu Kvennakór Hornafjarðar hingað. Var mikil ánægja með hópavinnuna, skemmtileg þemu og frábærir stjórnendur. Á þessu landsmóti var bryddað upp á þeirri nýjung að hver kona gat valið sér hóp persónulega, óháð kórnum sem hún er í, og leiddi þetta til þess að kórarnir blönduðust og konum gafst tækifæri á að kynnast betur. Verður þetta eflaust til eftirbreytni. Menningarmiðstöð aðstoðaði Kvennakórinn við undirbúning og framkvæmd mótsins.

Árlegur jólamarkaður var haldinn í Miðbæ og Nýheimum auk þess sem fjölmargar verslanir voru með ýmis tilboð í tilefni dagsins og opið frameftir degi. Mikill fjöldi lagði leið sína í verslanir bæjarins og gátu verslað sér allt í jólamatinn og jólapakkann á markaðsdeginum, enda nóg af gómsætum afurðum úr ríki vatnajökuls í boði, ásamt einstöku handverki. Legókrakkarnir slógu í gegn og sýndu þrautina sína, seldu miða á tombólu og fluttu tónlistaratriði. Um 1.000 manns lögðu leið sína á markaðinn frá morgni og fram til klukkan 16:00 og ánægjulegt að sjá hversu vel Hornfirðingar og gestir tóku þátt í þessum degi.

Tónleikar í samstarfi við Menningarmiðstöð 2008

Feðgarnir Bergþór Pálsson og Bragi Bergþórsson ásamt Þóru Fríðu Sæmundsdóttur, undirleikara fluttu ljúflingslög Inga T. Lárussonar á tónleikum í Nýheimum á árinu. Tónleikar þessir voru hluti af dagskrá Franskra daga sem haldnir eru á Fáskrúðsfirði. Bergþór er Hornfirðingum að góðu kunnur en hann hefur, ásamt mörgum góðum tónlistarmönnum, haldið hér tónleika í tengslum við Franska daga undanfarin nokkur ár. Á efnisskrá tónleikanna eru lög eftir Seyðfirðinginn Inga T. Lárusson (1892-1946). Ingi T. Lárusson er eitt af ástsælustu tónskáldum þjóðarinnar og hvert mannsbarn þekkir lög eins og "Það er svo margt", "Hríslan og lækurinn", og "Ég bið að heilsa".

Þrjár af vinsælustu rokkhljómsveitum Íslands héldu tónleika hér á Höfn, á vegum Rásar 2 og tímaritsins Monitor. Þetta er þriðja árið í röð sem Rás 2 stendur fyrir tónleikaferð um landið en í ár sameinast kraftar Rásar 2 og Monitor og úr varð stærsta tónleikaferðin til þessa. Helsti tilgangur ferðarinnar var að gefa tónlistaráhugafólki á landsbyggðinni tækifæri til að sjá og heyra í fremsta tónlistarfólk landsins af yngri kynslóðinni í heimabyggð og fyrir lítið fé.

Sumargleðin var á tónleikahringferð um landið með hljómsveitunum Benni Hemm Hemm, Borko, Morðingjarnir og Reykjavík! Lokatónleikar Sumargleðinnar á landsbyggðinni voru í Pakkhúsinu laugardagskvöldið 19. júlí og heppnuðust mjög vel, enda skemmtilegar hljómsveitir þarna á ferð.

Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt tónleika í íþróttahúsinu á Höfn. Aðgangur að tónleikunum var ókeypis og mættu um 380 manns til að hlýða á tónlist Sinfóníunnar. Á efnisskrá var fimmta sinfónía Beethovens, Karnivalforleikur eftir Dvorák og kafli úr hinni ástsælu tónlist Edvard Grieg við Pétur Gaut. Fyrsti konsertmeistari hljómsveitarinnar, Sigrún Eðvaldsdóttir, lék einleik með hljómsveitinni í Rómönsu eftir Árna Björnsson og fyrsta kaflann úr fiðlukonsert Sibeliusar. Stjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar er Petri Sakari.

Frostrósir héldu stórtónleika í Íþróttahúsinu, ásamt hljómsveit, barnakór og strengjakvartett. Hornfirðingar fjölmenntu á tónleikana, gestir komu frá nágrannabyggðum og var mikil og góð stemming í Íþróttahúsinu. Um 400 manns komu til að hlusta á jólalögin og eiga góða kvöldstund. Tónleikarnir voru hinir glæsilegustu og við hlökkum til að fá Frostrósir aftur í heimsókn að ári.

Afhending Menningarverðlauna og styrkja 2008

Menningarverðlaun hlaut í ár Jack D. Ives fyrir bókina "Skaftafell í Öræfum - Íslands þúsund ár" og rannsóknir hans í Skaftafelli frá 1952. Athöfnin fór fram í Nýheimum. Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, bauð gesti velkomna og svo tók við dagskrá með tónlistaratriðum og styrkveitingum. Samstarf Jack D. Ives við Ragnar Stefánsson í Skaftafelli lifir í verkum hans og endurspeglar lífshætti, menningu og störf íbúa Öræfa, um leið og hann beinir sjónum að því lifandi landslagi sem umlykur sveitina. Í ræðu sinni þakkaði Jack D. Ives þann heiður sem honum er sýndur með þessari viðurkenningu. Á yfir fimmtíu ára viðkynningu hefur hann orðið vitni að miklum breytingum á einu afskekktasta svæði Íslands, svæði sem einkennist af nálægð við jökulinn og eldfjöll og umbrotum í þeim.

Barnastarfið í Menningarmiðstöðinni 2008

Leynigestur kom í heimsókn í eina sögustundina á bókasafninu, en það var hesturinn Erpur. Bryndís Hólmarsdóttir sem sér um sögustundina ákvað að koma krökkunum á óvart og það tókst virkilega vel og þeim fannst þetta afskaplega spennandi gestur þó sum væru hálf smeyk í fyrstu. Hræðslan hvarf þegar þau fengu að gefa Erp góðgæti úr lófa sínum og svo að koma á bak. Sögustund er fyrir litlu börnin einu sinni í viku og segir Bryndís dálítið mismunandi hvað margir mæta, algengt að þau séu svona 7 til 9 það fari eftir því hvað foreldrarnir séu dugleg að koma með þau. Hún segir að flest börnin fylgist vel með því sem lesið er fyrir þau.

Listasmiðja fyrir krakka á aldrinum 10 - 16 ára var í boði í sumar. Halldóra og Siggi Palli sáu um listasmiðjuna sem var viðburðarík. Eitthvað var í boði fyrir alla aldurshópa og markmiðið að virkja krakkana í leik og starfi. Listasmiðjan tók virkan þátt í Humarhátíð en þar var Karnival stemmning í skrúðgöngunni.

Leikhópurinn Lotta kom til Hornafjarðar og sýndi undir berum himni fjölskyldusýninguna Galdrakarlinn í Oz en leikhópurinn sýndi einmitt Dýrin í Hálsaskógi í fyrrasumar við miklar vinsældir. Leikstjóri og höfundur leikgerðar er Ármann Guðmundsson og er hann jafnframt höfundur tónlistar og söngtexta ásamt þeim Baldri Ragnarssyni, Eggerti Hilmarssyni og Snæbirni Ragnarsyni en þeir eru allir meðlimir hljómsveitarinnar Ljótu hálfvitarnir. Með helstu hlutverk fóru Rósa Björk Ásgeirsdóttir sem Dóróthea, Baldur Ragnarsson sem Fuglahræðan, Sigsteinn Sigurbergsson sem Pjáturkarlinn, Anna Bergljót Thorarensen sem Ljónið og hundurinn Bella sem Tótó.

Nemendur úr Grunnskóla Hornafjarðar heimsóttu Bókasafn Menningarmiðstöðvar í þeim tilgangi að fá safnkennslu. Þá komu í heimsókn forvitnir nemendur úr grunnskólanum en þeir vildu kynna sér þá starfsemi sem fram fer í Nýheimum. Þeir heimsóttu Bókasafn, Háskólasetur, Nýsköpunarmiðstöð og Matís, fræddust um þjóðgarða og frumkvöðla og spurðu spekingslegra spurninga svo sem hvað væri mikið af snúrum á Háskólasetri. Ónákvæm talning leiddi í ljós að á einni lítilli skrifstofu voru að minnsta kosti 14 snúrur.

Dagskrá barnastarfs Menningarmiðstöðvarinnar var fjölbreytt í ár eins og síðustu árin. Fleiri börn koma í ferðirnar ár hvert, sem eru ótrúlega fjölbreyttar og ýta undir leik í náttúrunni og leggur starfsfólk menningarmiðstöð áherslu á að krakkarnir læri af umhverfinu og læri að þekkja helstu staði sýslunnar og hvað þeir hafa upp á að bjóða. Boðið var upp á í sumar fuglaskoðun, vitaferð í Hvalnes, fjársjóðsferð á Melatanga, fornleifarannsóknir, lúruveiði, steinaferð, gengið á reka og svo óvissuferð.

Grallarar í Sandgerði gáfu krökkunum á Krakkakoti og Lönguhólum bækur um kisurnar Glingló og Dabba og hundinn Rex sem lenda í hinum ýmsu ævintýrum og gerast við rammíslenskar aðstæður. Bókagjöfin var til komin vegna sýningarinnar Þetta vilja börnin sjá sem Menningarmiðstöð hefur haft til sýningar undanfarin tvö ár. Vinirnir í bókunum fara meðal annars í bryggjuveiði, fjöruferð og eggjaskoðunarferð. Öll börnin fengu tvær bækur að gjöf og voru hæstánægt með gjöfina. Félagarnir í bókunum eiga heimasíðu þar sem hægt er að finna ýmsa skemmtilega leiki, vísnahorn, litabók, uppskriftir og margt fleira og er skemmtileg afþreying fyrir alla grallara.

Árið 2009 verður einnig viðburðaríkt hjá Menningarmiðstöðinni en hér fyrir neðan eru nokkur af þeim verkefnum sem verða tekin fyrir á næsta ári.

Söguslóðir á Suðausturlandi

Melatangi, þátttaka í uppbyggingu fólkvangs á Melatanga

Vöruþróunarverkefni á menningartengdri ferðaþjónustu, Humarhátíð og Papaverkefni

Þátttaka og aðstoð við undirbúning hátíða og viðburða

Aðstoð við styrkumsóknir og undirbúning verkefna

Þátttaka í útgáfu bókar um Svavar Guðnason

Sýning á verkum Svavars Guðnasonar

Dagskrá tengda Lóni, sögu og sögnum úr héraði

Gönguferðir, t.d. í Lóni

Ljósmyndasýning

Spurningakeppni fyrirtækja

Þjóðahátíð

Menningahátíð ungmenna á Hornafirði

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica