Menning
Hlynur og Ída Mekkín
Hlynur og Ída Mekkín
Hlynur og Ída Mekkín

17.12.2008

Sýningin Graðaloftið

Á fimmtudaginn 18. desember kl. 16 opnar ljósmynda- og málverkasýningin "Graðaloftið" á vegum Hlyns Pálmasonar. Eru allir velkomnir og verður boðið upp á kaffi og smákökur. Á þessari sýningu verða ljósmyndir, olíumálverk og mixed mediaverk. Sýningin verður opin alla daga fram að jólum frá kl. 16- 19 nema á Þorláksmessu verður opið til kl. 23. Þetta er þriðja sýning hans hér á Hornafirði og er spennandi að fylgjast með listsköpun hans ár frá ári og á hann eflaust bjarta framtíð framundan sem listamaður.

"Ég er með stórt borð á miðju loftinu, sem er nýtt, þar sem er að finna digital ljósmyndir í járnramma sem ég smíðaði, þessar myndir voru hugsað fyrir jólagjafir, enda á góðu verði. Síðan er ég með stórar myndir sem eru framkallaðar á ál og húðaðar með ND filter sem gefur myndinni góða endingu. Filmumyndirnar eru unnar í myrkraherberginu. Þær eru innrammaðar í tréramma sem ég smíða sjálfur. Myndirnar eru tilraun til að blanda saman ljósmyndum og málverkum án þess að koma nálægt tölvum og tölvubúnaði. Olíuverkin eru tilfinningar á striga og eru í öllum stærðum og gerðum en málverkin á þessarri sýningu eru þau stærstu sem ég hef búið til", segir Hlynur og vill einnig taka það fram að hægt verður að kaupa gjafabréf á sýningunni.

En Hlynur fæst líka við kvikmyndagerð og bíða eflaust margir eftir frumsýningunni á nýjustu mynd hans "Jóel" sem var tekin hér s.l. sumar. Frumsýningin verður 20. desember kl. 20 í Sindrabæ og önnur sýning verður 22. des. kl. 20. Auk nýju myndarinnar "Jóel" verður sýnd verðlaunamyndin "post-it" , en hún vann nýlega fyrstu verðlaun í stuttmyndasamkeppninni "Ljósvakaljóð 2008" og lenti í þriðja sæti í á Stuttmyndahátið Reykjavíkur. Í lokin á sýningunni verður svo sýnd stuttmyndin "Gerð myndarinnar Jóel" eftir Daníel Imsland.


hpalmason.com
flickr.com/photos/hlynurp
hlynurp.blogspot.com



Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica